Gjaldskrá


Innifalið í gjaldi fyrir tamningahross eru auk tamningavinnu, fóðrun og hirðing.  Grunngjald tamninga eru kr. 60.000 á mánuði fyrir geldinga og hrysssur, en kr. 70.000 fyrir stóðhesta auk virðisaukaskatts, en afsláttur er veittur eftir fjölda hrossa sem tekin eru í tamningu og fjölda mánaða sem þau dveljast á búinu.  Gerum föst verðtilboð.  Hægt er að sækja hesta og skila þeim til eiganda.  Venjulegar járningar kosta kr. 10.000 með skeifum.

Hagaganga kostar kr. 120.000 á ári fyrir hryssur og geldinga, en kr. 160.000 fyrir stóðhesta, veturgamla og eldri. Er innifalið hey í allt að 8 mánuði, ormalyf og aðgangur að vítamínum eftir þörfum.  Folöld eru gjaldfrjáls til áramóta árið sem þau fæðast, en innheimt er venjulegt gjald fyrir þau eftir það.  Fóðrun fyrir folöld á húsi kostar kr. 13.000 á mánuði.  Við tökum folöld inn á tímabilinu nóvember til janúar, fer eftir tíðarfari.  Folöldin eru rökuð og eru í góðum stíum.

Reikningar eru sendir mánaðarlega.

hrisdalsb