Tamningar og þjálfun
Hrísdalshestar reka tamningastöð þar sem starfa þau Siguroddur Pétursson, félagi í FT og Ásdís Ó. Sigurðardóttir. Þau hafa áralanga reynslu af tamningum og þjálfun hrossa. Með þeim hefur svo starfað aðstoðarfólk eftir þörfum og hefur Kolbrún Hermannsdóttir verið hjá okkur frá 2008.

Siguroddur og Ásdís í hesthúsinu í Hrísdal
Siguroddur hefur mikið keppt og sýnt hross í gegnum tíðina auk þess að sýna kynbótahross með góðum árangri. Hann var hestaíþróttamaður HSH 2007 og 2008.
|
Siguroddur á Flóka frá Kirkjuferjuhjáleigu, bikarmeistari í
fjórgangi á Vesturlandi 2007 |
Í hesthúsinu er plass fyrir 32 tamningahross í tveggja hesta stíum. Þar er einnig reiðhöll áföst hesthúsinu og ágætar reiðleiðir. Hesthúsið var innréttað 2006 og er allt hið glæsilegasta.
Reiðhöllin hefur gert að verkum að veðrið hefur ekki áhrif á tamningarnar. Hrossin koma víða að og hafa verið mörg efnileg og góð hross í tamningu og þjálfun og má nefna að við erum m.a. að vinna með hross undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum, Adam frá Ásmundarstöðum, Óði frá Brún, Sveini Hervari frá Þúfu, Hugin frá Haga, Kletti frá Hvammi, Gára frá Auðsholtshjáleigu, Kormáki frá Flugumýri, Kvisti frá Hvolsvelli, Pilti frá Sperðli, Ými frá Holtsmúla og Flygli frá Vestri-Leirárgörðum svo einhverjir séu nefndir.
Vinsamlegast hafið samband við Sigurodd í s. 897 9392, eða með því að senda tölvupóst á
siguroddur@hrisdalur.is til að panta pláss fyrir hross í tamningu eða þjálfun.

Ásdís á Lyftingu frá Kjarnholtum 2007

Guðný Margrét og Mosi frá Kílhrauni 2007
|

|
|
Gunnar og Borghildur í hesthúsinu
|
 |
|
| Siguroddur á Hróki frá Flugumýri vorið 2007. |
|

Siguroddur á Lyftingu frá Kjarnholtum vorið 2007