Sigurrós frá Strandarhjáleigu, IS2001284879, rauð-tvístjörnótt
faðir: Kvistur frá Hvolsvelli, móðir: Sóldögg frá Búlandi.
Sigurrós er 1. verðlauna hryssa og hefur hlotið 8,2 fyrir sköpulag 8,2 og 8,16 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8,18.
Sýnd á Landsmóti 2006 með góðum árangri.
Afkvæmi:
Hrynur frá Hrísdal 2007, rauður f. Þóroddur frá Þoroddsstöðum. Hrynur var seldur finnskum hrossaræktendum veturinn 2009. Hann er nú kominn á hús í Hrísdal og tamingin fer vel af stað.

Hrynur í túninu í Hrísdal 2007 |
 |

Hrynur í Hrísdal 2009
Hending frá Hrísdal 2009, jörp, f. Gaumur frá Auðsholtshjáleigu landsmótssigurvegari í flokki 7 vetra stóðhesta 2008.
Hending Gaumsdóttir frá Hrísdal með mömmu sinni 2009.
Vísa frá Hrísdal 2010, rauðtvístjörnótt, undan Auð frá Lundum.

Sigurrós er fengin við Seið frá Flugumýri 2010.
Sigurrós var í þjálfun veturinn 2007-2008 og hefur staðið sig vel á mótum, Siguroddur keppti á henni á ísmótinu "Þeir allra sterkustu" 2008 og kom hann einnig fram með hana á ýmsum reiðhallarsýningum veturinn 2007-2008. Sigurrós keppti í B-flokki á LM 2008 og stóð sig vel, auk þess að koma fram í ræktunarbússýningu Strandarhjáleigubúsins á LM 2008.

Siguroddur og Sigurrós á LM 2008. Sjá myndir hér. |