Fjöður frá Kvíarhóli, IS1993287062, brúnstjörnótt

Við eigum Fjöður með Guðjóni Sigurðssyni skólastjóra í Hveragerði. Fjöður er alsystir gæðingshryssunnar Gjafar frá Hvoli, en er ósýnd.

Faðir Kolfinnur frá Kvíarhóli, móðir: Kylfa frá Kirkjubæ.

  
Afkvæmi:
Blíða frá Hvoli 2004, brúnstjörnótt, undan Víði frá Prestbakka, er til sölu.
Dreki frá Hvoli 2006, brúnstjörnóttur, undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum. 
Djásn frá Hrísdal 2007, brúnstjörnótt, undan Tinna frá Kjarri, Djásn frá Hrísdal.  
Demantur frá Hrísdal 2008, brúnskjóttur, undan Bjarma frá Keldudal.
Fjöður var haldið undir Feld frá Hæli 2008 en lét fylinu.
Haldið undir Feld aftur 2009, er fengin.