Hryssur í ræktun hjá Hrísdalshestum:

Í sumar héldum við eftirtöldum hryssum undir stóðhesta:

Mánadís frá Margrétarhofi – Dugur frá Þúfu
Brá frá Laugardælum – Glymur frá Ytri Skeljabrekku
Þófta frá Hólum – Sveinn Hervar frá Þúfu
Salka frá Vestra-Fíflholti – Húmvar frá Hamrahóli
Abba frá Minni-Reykjum – Adam frá Ásmundarstöðum
Kólga frá Bár – Mjölnir frá Hlemmiskeiði
Sigurrós frá Strandarhjáleigu – Seiður frá Flugumýri
Dagsbrún frá Söðlagerði – Feldur frá Hæli
Fífa frá Kirkjuferjuhjáleigu – Adam frá Ásmundarstöðum
Drottning frá Hrepphólum – Hrókur frá Flugumýri
Elja frá Mosfellsbæ – Sædynur frá Múla

   
 Sigurrós frá Strandarhjáleigu í B-flokki á LM 2008  Glóð frá Kýrholti í B-flokki á FM 2009

Fífa frá Kirkjuferjuhjáleigu IS1990287093 grá
Fjöður frá Kvíarhóli IS1993287062 brúnstjörnótt
Mánadís frá Margrétarhofi IS1998201032 bleikálótt með stjörnu
Brá frá Laugardælum IS2000287322 móálótt
Þófta frá Hólum IS2001258302 rauð-tvístjörnótt
Salka frá Vestra-Fíflholti IS2001284656 rauðskjótt
Sigurrós frá Strandarhjáleigu IS2001284879 rauð-tvístjörnótt
Kólga frá Bár IS2002287359 steingrá


Ræktunarstarfið í Hrísdal

Upphafið af hrossarækt Guðrúnar Margrétar og Gunnars má rekja til þess að þau fengu hryssuna Roku frá Skrauthólum lánaða hjá Jóni Leví Tryggvasyni og héldu henni undir Óskar frá Litla-Dal árið 1999. Fyrsti gripurinn, Fáfnir frá Reykjavík er nú farinn til Finnlands, en áfram var haldið og hefur hryssunum fjölgað jafnt og þétt.  Við höfum verið svo heppin að eignast fallegar og góðar hryssur, og við eigum 4 fyrstu verðlauna hryssur í ræktuninni, en að auki erum við með bæði sýndar og ósýndar vel ættaðar og góðar hryssur í okkar ræktun.  Nánari upplýsingar um hryssurnar er að finna hér á síðunni.  Markmið okkar er að rækta geðgóða, viljuga og hágenga gæðinga.  Á búinu fæðast nú á ári um það bil 10 folöld á ári.  Myndir af folöldum fæddum 2009 má sjá hér.  Nokkrar myndir af veturgömlum og tveggja vetra folum frá okkur má sjá hér.
     
 2007 Hnáta Hnokkadóttir og
Brá frá Laugardælum






Veturgamlir folar í Hrísdal 2008.  Talið frá vinstri: Undan Tígli f. Gígjarhóli, Rökkva f. Hárlaugsstöðum, Hágangi f. Narfastöðum, Rökkva og Kletti f. Hvammi.


Tryppi í sólbaði, mars 2008

Valur frá Keldudal 2007, f. Klettur frá Hvammi, m. Venus frá Keldudal.  Valur er albróðir Bjarma frá Keldudal fæddur 2006.

Valur að leika sér 2008


Bjarmi á 4. vetri í mars 2008.  Hann er mjög stór og myndarlegur. Bjarmi var byggingardæmdur 2008 og fékk 8,04. 

Bjarmi var seldur 2008 til finnskra hrossaræktenda og hefur verið í þjálfun hjá Bjarna Jónassyni á Narfastöðum í Skagafirði.