Endurbætur
Það hefur mikið verið unnið að endurbótum í Hrísdal. Íbúðarhúsið hefur verið endurnýjað frá grunni, gömul fjárhús, fjós og hlaða sem stóðu á hlaðinu voru rifin og síðast en ekki síst var hesthúsið innréttað. Sjá myndir af ýmsum framkvæmdum
hér.
Einnig er búið að girða allt heimalandið og endurbætur á túnum eru komnar af stað, enda þarf heilmikil tún til að sjá búinu fyrir heyi.
Hægt er að sjá myndir af verkinu hér, annars vegar fyrir íbúðarhúsið og hins vegar hesthúsið.