Hrísdalur

Hrísdalur er í Eyja- og Miklaholtshreppi á sunnanverðu Snæfellsnesi. Jörðin er um það bil 900 hektarar, þar af um 20 hektarar ræktað land og liggur meðfram Straumfjarðará að vestan. Um það bil 140 kílómetrar eru til Reykjavíkur og því ekki langt að fara. Hrísdalur er vel gróin og grasgefin jörð sem hentar vel til beitar. Þar er einnig fjölbreytt landslag og býður upp á mikla möguleika til útivistar. Þar er einnig fjölskrúðugt fuglalíf. Verið er að vinna að lagningu reiðvega um sveitina þannig að greiðar leiðir eru til austurs á næstu bæi, auk þess sem tæplega klukkutíma reið er niður á hinar rómuðu Löngufjörur sem margir segja besta reiðveg á Íslandi. Til að sjá myndir af húsunum í Hrísdal smellið músinni
hér.
Gunnar Sturluson og Guðrún Margrét Baldursdóttir kona hans reka á jörðinni hrossabú og tamningastöð, Hrísdalshesta sf. Þar er að finna glæsilegt hesthús fyrir 32 hesta í tveggja hesta stíum, reiðhöll og fullkomna aðstöðu til tamninga, þjálfunar og kennslu. Einnig er búið að koma upp girðingum fyrir stóðhesta og hryssur. Siguroddur Pétursson og kona hans Ásdís Ólöf Sigurðardóttir annast daglegan rekstur á búinu og stunda tamningar.

Gunnar og Guðrún Margrét á góðri stund
á Löngufjörum.
Myndir frá opnun hesthússins í Hrísdal
20. janúar 2007
Ljósmyndari: Friðrik Örn