Enskir cocker spaniel hundar í Hrísdal


Stemma íslenskur meistari 2007.
Sýnandinn Ólöf Karitas Þrastardóttir stillir henni upp.
Guðrún Margrét ræktar enska cocker spaniel hunda undir ræktunarheitinu Hrísdals Engla. Upphaf ræktunarinnar var tíkin ISCH Rushmi Rhythm 'N' Blues (Stemma), sem við fengum keypta 4 ára gamla hjá hunda- og hrossaræktendunum á Sperðli í Landeyjum, Ingu Björk Gunnarsdóttur og Þresti Ólafssyni. Þau fluttu Stemmu inn frá Írlandi sem hvolp en okkur til happs þurftu þau að finna gott heimili handa henni þegar við vorum að leita að góðum hundi. Stemma var einstaklega vel ættuð, skapgóð og heilsuhraust og var með tvö íslensk og eitt alþjóðlegt meistarastig (CACIB) þegar við eignuðumst hana. Við ákváðum að byrja að sýna hana aftur og varð hún íslenskur meistari í mars 2007, sjá myndir. Við fengum síðan got undan henni og ISShCh Classicway Cambridge Blue í júní 2007 og ákváðum að halda eftir dóttur hennar Hrísdals Engla Uglu, sjá myndir. Áður en við fengum þetta got höfðum við keypt aðra tík hjá hjónunum á Sperðli, Bjarkeyjar Kolbrá Lilju (Kolu), sjá myndir. Stemma féll frá af slysförum í júní 2008, á áttunda ári.
Guðrún leitaði lengi að góðum ræktanda erlendis til að freista þess að fá keypta efnilega tík. Í desember 2008 fæddist orange roan tík í annars svörtu goti hjá Manaca's ræktun í Svíþjóð og samþykkti Monica Forsander ræktandi að selja okkur Lísu litlu, sem heitir Manaca's Year In Year Out í ættbók, og kom hún úr einangrun um miðjan júlí 2009. Lísa er einstaklega falleg og fjörug tík með afar sterkar línur á bakvið sig, bæði skandinavískar og enskar, og höfum við trú á því að hún muni bæta enska cocker spaniel stofninn hér á Íslandi þegar að þar að kemur.  Myndir af Lísu hér.

Guðrún fékk sýningarbakteríuna með Stemmu á sínum tíma og hefur hún tekið þátt í hverri einustu hundasýningu HRFÍ síðan. Stemma varð íslenskur meistari 2007 (ISCH), eins og áður sagði, Kola er komin með tvö íslensk meistarastig og eitt CACIB og Ugla hefur fengið excellent og meistaraefni í öll skiptin sem hún hefur verið sýnd, utan einu sinni. Síðast en ekki síst varð Lísa besti hvolpur tegundar báða sýningardagana á afmælissýningum HRFÍ í ágúst 2009 og gerði sér lítið fyrir og varð í 3. sæti í keppni um besta hvolp sýningar fyrri daginn (BIS-3). Kasper (Hrísdals Engla Elliði) bróðir Uglu hefur einnig verið sýndur með mjög góðum árangri, m.a. varð hann besti hundur tegundar (BOB)  á sýningu HRFÍ í mars 2009, með íslenskt meistarastig og CACIB. Þar varð Kola í 2. sæti yfir besta hund tegundar (BOS).  Myndir af sýningunni hér.
   
   
   
   
   
   







Sætar systur, Ugla til vinstri og Kola til hægri


Hrísdals Engla Ugla úfin um höfuðið fyrir snyrtingu